Það gleður Mýrina að tilkynna að Sigríður Kristjana Ingimarsdóttir verður gestur á hátíðinni. Sigríður er háskólanemi, bókaunnandi, prófarkarhlustari og ritstýra sem spilar einstaka sinnum á selló. Um þessar mundir leggur hún stund á M.Ed. við Háskólann á Akureyri og stefnir á kennslu á framhaldsskólastigi. Í sumar lauk hún starfsnámi í ritstjórn hjá Benedikt bókaútgáfu.
Sigríður er með B.A. í Almennri bókmenntafræði og M.A. í Hagnýtri ritstjórn og útgáfu en hún lauk meistaraprófsritgerðinni sinni, „Hvað viltu lesa? – Hvað vilja ungmenni lesa og hvernig vilja þau nálgast lesefnið?“, nú í haust. Lesa meira …
It’s a pleasure to announce that Sigríður Kristjana Ingimarsdóttir will be a guest at the festival. Sigríður is a university student, book lover, editor and audio editor, who occasionally plays the cello. Currently she studies for her M.Ed. at The University of Akureyri and her goal is to teach at secondary level. In spring, she finished her internship in Editing at publishing house Benedikt. Sigríður holds a BA in Literary studies and finished her MA in Editing and Publishing with the thesis “What do you like to read – what do young adults like to read and how
do they like to read it?” Read more …
Category: Uncategorized
Hólmfríður Ólafsdóttir – Gestur 2018 / Guest 2018
Það er Mýrinni ánægja að tilkynna að Hólmfríður Ólafsdóttir verður þátttakandi á málþinginu sem fram fer föstudaginn 12. október.
Hólmfríður starfar sem verkefnastjóri viðburða hjá Borgarbókasafninu. Hún tók þátt í að skipuleggja verðlaunahátíðina Sögur en Sögur–verðlaunahátíð barnanna fór fram í Eldborg í apríl s.l. Á þessum stórviðburði í anda Kids’ Choice Awards verðlaunuðu íslensk börn á aldrinum 6-12 ára allt það sem þeim finnst standa upp úr í menningarlífinu. Markmið hátíðarinnar var að auka lestur barna, að upphefja barnamenningu og að hvetja börn til skapandi verka. Lesa meira …
Mýrin is happy to announce that Hólmfríður Ólafsdóttir will participate in the conference on 12 October. Hólmfríður works as Event and Communication Manager at the Reykjavik City Library. She is responsible for various events and directs many of the big family events within the library including Culture Night and Vetrarhátíð. Hólmfríður has been part of projects aimed to promote reading and worked together with both schools and the City Library. She took part in planning Sögur – verðlaunahátíð barnanna (Stories – Children’s Awards) which took place in Harpa last April. The main purpose with these awards were to promote children’s culture, reading and creativity. Read more …
Sigrún & Þórarinn Eldjárn – Heiðursgestir 2018 / Guests of Honour 2018
Mýrin kynnir með stolti heiðursgesti hátíðarinnar,
mynd- og rithöfundana Sigrúnu Eldjárn og Þórarin Eldjárn.
The Moorland is most honoured to welcome
the beloved authors Sigrún Eldjárn and ÞórarinN Eldjárn
as Guests of Honour at this year’s Festival.
Sigrún Eldjárn er fædd í Reykjavík 1954. Sigrún starfar sem myndlistarmaður og rithöfundur. Hún hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum víða um lönd.
Sigrún hóf fljótt að myndskreyta bækur en árið 1980 ákvað hún að reyna sig líka á ritvellinum. Það sama ár kom út hennar fyrsta bók, Allt í plati! Síðan þá hefur hún gefið út allt frá einni og upp í fleiri bækur á hverju ári og eru þær nú orðnar óteljandi.
Þórarinn Eldjárn fæddist í Reykjavík 1949. Hann stundaði háskólanám í Lundi og í Reykjavík, las bókmenntasögu, heimspeki og íslensku. Fyrsta ljóðabók hans, Kvæði, kom út 1974 og síðan hefur hann starfað sem rithöfundur og þýðandi. Eftir hann liggja ótal ljóðabækur fyrir fullorðna og börn, smásagnasöfn og skáldsögur auk þess sem hann hefur átt aðild að mörgum sviðsverkum og fengist við þýðingar.
Lesa meira …
Sigrún Eldjárn was born in Reykjavík in 1954. She graduated from the Icelandic Academy of Art and Crafts in 1977. Sigrún works as an artist and writer. She has had several solo exhibitions as well as taken part in numerous group exhibitions around the world.
Early in her career, Sigrún started illustrating books, but in 1980 she decided to attempt writing as well. That same year her first book, Allt í plati! was published. Since then she has written and illustrated countless books.
Þórarinn Eldjárn was born in Reykjavík in 1949. He studied Literary History, Philosophy and Icelandic at the universities in Lund and in Reykjavik. Þórarinn’s first book of poetry, Kvæði, was published in 1974 and since then he has worked as a writer and translator. He wrote numerous poetry books for adults and children as well as collections of short stories and novels.
Read more …
Sævar Helgi Bragason – Gestur 2018 / Guest 2018
Mýrin tilkynnir með mikilli gleði og ánægju að Sævar Helgi Bragason er gestur hátíðarinnar í ár. Sævar er stjörnufræðikennari, vísindamiðlari og höfundur bókanna Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna (2016) og Geimverur: Leitin að lífi í geimnum (2017).
Sævar starfar við dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi hjá KrakkaRÚV, auk þess að vera tíður gestur í fjölmiðlum til að fræða fólk á öllum aldri um vísindi.
Lesa meira …
The Moorland announces with great joy that Sævar Helgi Bragason is a guest at this year’s festival. Sævar is an Astronomy teacher, science advocator and the author of the books Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna (“Stargazing for the whole family”, 2016) and Geimverur: Leitin að lífi í geimnum (“Aliens: the search for life in space”, 2017). Sævar works as a radio and television presenter at KrakkaRÚV and he is a frequent guest in the media, teaching people of all ages about science. Read more …
Dagný Kristjánsdóttir – Gestur 2018 / Guest 2018
Það gleður okkur í Mýrinni að tilkynna að Dagný Kristjánsdóttir er gestur á hátíðinni. Dagný er prófessor í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku og menningardeild, Hugvísindasviðs Háskóla Íslands.
Lesa meira …
The Moorland happily announces that Dagný Kristjánsdóttir is our guest at the festival this year. Dagný is a professor in Contemporary Icelandic Literature at the faculty of Icelandic and Comparative Cultural Studies at the University of Iceland.
Read more …
Ævar Þór Benediktsson – Gestur 2018 / Guest 2018
Mýrin tilkynnir með ánægju að Ævar Þór Benediktsson (f. 1984), leikari og rithöfundur, er gestur hátíðarinnar í haust. Hann er þekktastur fyrir bókaröðina ,,Þín eigin”, þar sem lesandinn ræður ferðinni og bækurnar um bernskubrek Ævars vísindamanns. Hann hefur einnig starfað mikið í sjónvarpi og útvarpi, þá mest sem Ævar vísindamaður.
Ævar stóð fjórum sinnum fyrir Lestrarátaki Ævars vísindamanns, en í þeim hafa um 230 þúsund bækur verið lesnar samtals.
Lesa meira …
The Moorland is happy to announce that Ævar Þór Benediktsson (1984) will be a guest at the festival in October. Ævar is an actor and author, best-known for his Þín eigin (Your own) – series, where it’s up to the reader to decide what way the story goes, and his books about Ævar the Scientist’s childhood escapades. He has worked in television and radio, mostly as Ævar the Scientist. Ævar has been running four seasons of his Ævar the Scientist´s reading promotion campaign, with which all together around 230.000 books have been read.
Read more …
Marta Hlín Magnadóttir – Gestur 2018 / Guest 2018
Það gleður Mýrina að tilkynna að Marta Hlín Magnadóttir verður gestur á hátíðinni. Hún er fædd árið 1970 á Ísafirði og bjó þar til tvítugs. Vorið 2011 lauk hún M.Ed námi frá Háskóla Íslands í náms- og kennslufræðum, með íslensku og íslenskukennslu sem kjörsvið. Mastersritgerðin bar nafnið Lesandi er landkönnuður og fjallar um barnabækur í kennslu á miðstigi. Sama haust stofnaði hún Bókabeituna ásamt Birgittu Elínu Hassell í þeim tilgangi að auka fjölbreytni í úrvali á barnabókum og um leið að kenna sem flestum börnum að lesa.
Lesa meira …
It’s a pleasure to announce that Marta Hlín Magnadóttir will be a guest at the festival. In 2011 she completed her MA of Education at the University of Iceland in Education and Teaching with Icelandic Language and Teaching as a specialisation. Her Master’s thesis, titled “The reader is an explorer”, deals with children’s books in primary school teaching. In the autumn of 2011, she founded the publishing house Bókabeitan together with Birgitta Elín Hassell. Their purpose was to make the selection of children’s books on the Icelandic market more diverse and promote reading among as many children as possible. Read more …
Ármann Jakobsson – Gestur 2018 / Guest 2018
Mýrin tilkynnir með ánægju að Ármann Jakobsson verður gestur okkar í haust. Ármann er prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við
Háskóla Íslands. Hann hefur sent frá sér skáldverkin Fréttir frá mínu landi (2008), Vonarstræti (2008), Glæsir (2011), Brotamynd (2017) og Útlagamorðin (2018).
Árið 2014 kom fyrsta barnabók Ármanns út, Síðasti galdrameistarinn og er hún myndskreytt af Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur.
Lesa meira …
Myrin is happy to announce that Ármann Jakobsson will be our guest at this year’s festival. Ármann is a professor of Medieval Icelandic Literature at the University of Iceland. He has published the novels Fréttir frá mínu landi (2008), Vonarstræti (2008), Glæsir (2011), Brotamynd (2017) and Útlagamorðin (2018).
In 2014, his first children’s book came out, called Síðasti galdrameistarinn (“The last wizard”), with illustrations by Bergrún Íris Sævarsdóttir. Read more…
Þórdís Gísladóttir – Gestur 2018 / Guest 2018
Mýrin tilkynnir með mikilli gleði að Þórdís Gísladóttir er gestur á hátíðinni í haust. Hún er fædd 14. júlí árið 1965 og ólst upp í Hafnarfirði. Þórdís lauk BA-prófi í íslensku frá Háskóla Íslands, stundaði MA-nám í bókmenntum og lauk fil.lic-prófi í norrænum fræðum frá Uppsalaháskóla í Svíþjóð þar sem lokaverkefnið var rannsókn á tvítyngi. Auk ritstarfa hefur Þórdís starfað sem bókmenntagagnrýnandi, fyrirlesari, blaðamaður, starfað við dagskrárgerð, við vefritstjórn og ritstýrt tímaritinu Börnum og menningu.
Þórdís skrifar jöfnum höndum fyrir börn og fullorðna og hefur einnig samið námsefni og skrifað unglingabækur í samstarfi við Hildi Knútsdóttur, bækurnar um hinn óborganlega grallara Dodda. Þá hefur hún þýtt fjölda bóka og leikrit, flest úr sænsku. Fyrsta ljóðabók Þórdísar, Leyndarmál annarra, hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2010.
Lesa meira …
We are very happy to announce that Þórdís Gísladóttir is a guest at the Moorland festival in October. She is a writer and translator, born in 1965. Þórdís finished her Bachelors degree in Icelandic at the University of Iceland, a Master’s in Literature and graduated as Ph.Lic in Scandinavian Studies at Uppsala University in Sweden. Þórdís writes both for children and adults. She has also composed study material and published books for adolescents in cooperation with Hildur Knútsdóttir, about the incredibly funny 14 year old Doddi. She has translated several books and plays, most of them from Swedish to Icelandic.
Þórdís was awarded with Fjöruverðlaunin, the Women’s Literary Prize, and she was nominated three times for the Icelandic Literary Prize. For her translation of Allt er ást (“All is love”) by Kristian Lundberg, she was nominated for the Icelandic Translator’s Prize. The poetry book Óvissustig (“Levels of Uncertainty“) was nominated for the May Star in 2016, a poetry award given by The Icelandic Writers’ Union and The National and University Library of Iceland for the best poetry book of the year. Read more …
Rán Flygenring – Gestur 2018 / Guest 2018
Það gleður Mýrina að tilkynna að Rán Flygenring verður gestur hátíðarinnar í haust. Rán er fædd árið 1987 og er myndskreytir og grafískur hönnuður frá Reykjavík. Hún starfar að verkefnum víða um heim, myndskreytir, ritstýrir og kemur fram á hinum ýmsu listahátíðum svo fátt eitt sé nefnt.
Að loknu stúdentsprófi árið 2006 lærði Rán grafíska hönnun við Listaháskóla Íslands og fór í framhaldsnám til Oslóar þar sem hún lauk Mastersnámi í hönnun frá Listaháskólanum þar í borg árið 2015.
Lokaverkefni Ránar frá Listaháskóla Íslands Stundum kom út árið 2009 og í kjölfar þess kom hún að útgáfu á meira en 10 verkum, ýmist sem myndskreytir eða hönnuður og oftast í samstarfi við þýska rithöfundinn Finn-Ole Heinrich. Samstarf þeirra tveggja hefur verið einstaklega gjöfult og hafa þeim hlotnast hin ýmsu verðlaun og viðurkenningar. Fuglar er nýleg afurð Ránar en hana gerir hún í samstarfi við Hjörleif Hjartarson og vakti bókin strax mikla athygli og hlaut margvíslegar viðurkenningar.
Lesa meira …
The Moorland is happy to present Rán Flygenring as one of its participating authors this fall. Born in 1987, Rán is an illustrator, designer and artist from Reykjavík. She works internationally on projects ranging from live-drawing at festivals and conferences to editorial work for publishers and galleries.
After finishing high school in 2006, Rán studied Graphic Design, Design and Typography in Iceland, Germany, Switzerland and Norway, achieving a Master’s degree in design at the Oslo National Academy of the Arts in 2015.
Since her first publication Stundum, the final project of her Bachelor’s studies published in 2009, Rán was involved in more than 10 publications of both books and designs, often in cooperation with the German author Finn-Ole Heinrich and their works have been awarded with many nominations and awards. Her most recent publication Fuglar (“Birds”) which was published in cooperation with Hjörleifur Hjartarson in 2017, has received a lot of attention and credit.
Currently, she works as a self-employed illustrator, designer and artist for many international clients. Read more …