Alþjóðleg barnabókmenntahátíð í Reykjavík – International Children's Literature Festival in Reykjavík
Nick White
Nick White er listamaður, myndhöfundur og kennari í myndlýsingu og teiknimyndagerð við Kingston Listaháskólann. Hann hefur sýnt verk sín í galleríum í London, Liverpool, Amsterdam, Antwerpen, Bastía, Húsavík og í Hveragerði. Sem myndhöfundur hefur hann unnið fyrir fjölda útgefendur, stofnanir og tímarit, eins og Viktoríu og Albert safnið, Random House, Bloomberg Business Week, The New York Times, L.A. Times, ELCAF og Quentin Blake miðstöðina. Árið 2017 gaf hann út barnabók um Alberto Giacometti hjá Tate útgáfunni. Bókin kynnir ungum lesendum töfraheim listamannsins með fjölda mynda og verkefna. Í dag vinnur hann helst verkefni sem byggja á ímynduðum og óhlutbundnum rennibrautagörðum, þar sem hann veltir fyrir sér línum, lögun og formum. Leikur og takmarkanir eru lykilatriði í verkum hans. Leikur sem rannsókn á endurtekningu og hvernig lögun og form breytast, mótast og þróast með ólíkum miðlum. Leikur sem rannsókn á húmor og karakter, texta og mynd. Nick segir, “verk mín verða til í gegnum ólíka kanala vegna þeirrar litlu einbeitingu sem ég hef og verið sífellt minni, þetta á við um málverk, klippimyndir, keramik, teikning, prent, bækur, zines, smiðjur og einstaka lög, til að nefna nokkur dæmi.”
Nick mun veita gestum Mýrarinnar innsýn í gáskafullar vinnuaðferðir sínar í myndlist og hönnun með því að bjóða upp á masterclass í skrifum fyrir börn og halda smiðju í vatnsrennibrautagerð.