Þórdís Gísladóttir

Þórdís Gísladóttir, rithöfundur og þýðandi, er fædd 14. júlí 1965 og ólst upp í Hafnarfirði. Hún lauk BA-prófi í íslensku frá Háskóla Íslands, stundaði MA-nám í bókmenntum og lauk fil.lic-prófi í norrænum fræðum frá Uppsalaháskóla í Svíþjóð þar sem lokaverkefnið var rannsókn á tvítyngi. Auk ritstarfa hefur Þórdís starfað sem bókmenntagagnrýnandi, hún hefur kennt og flutt fyrirlestra við skóla á Íslandi og erlendis, skrifað greinar í íslensk og erlend blöð og tímarit, gert útvarpsþætti og flutt pistla á RÚV, unnið sem vefritstýra fyrir Norrænu ráherranefndina og ritstýrt tímaritinu Börnum og menningu.
Þórdís skrifar jöfnum höndum fyrir börn og fullorðna og hefur einnig samið námsefni og skrifað unglingabækur í samstarfi við Hildi Knútsdóttur, bækurnar um hinn óborganlega grallara Dodda. Þá hefur hún þýtt fjölda bóka og leikrit, flest úr sænsku. Fyrsta ljóðabók Þórdísar, Leyndarmál annarra, hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2010, eftir það hefur hún sent frá sér ljóðabækur, barna- og unglingabækur og kennslubækur og ljóð og smásögur eftir hana hafa einnig birst í safnritum. Þórdís hefur hlotið Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, fengið þrjár tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, hún hlaut tilnefningu til íslensku þýðingarverðlaunanna fyrir bókina Allt er ást eftir Kristian Lundberg og ljóðabókin Óvissustig hlaut tilnefningu til Maístjörnunnar, ljóðabókaverðlauna Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns, fyrir bestu íslensku ljóðabókina sem kom út árið 2016.